HK stelpur
Talning
Eftir 64 daga
Öldungamót á Siglufirði
RSS tengill
31.08.2011 21:53:36 / Hulda

Blakið er byrjað

Æfingatímar í vetur: 
 Mánudagar  kl.19.30 -20.45  – Mfl.kvk 2.deild – völlur 1
Miðvikudagar kl.19.00 -20.30  – Mfl.kvk 2.deild – völlur 1
Föstudagar  kl.18.30 -20.00  – Mfl.kvk 2.deild – völlur 2

Við stefnum á fund eftir æfingu á mánudag þar sem þarf að ræða ýmislegt, plana og skipuleggja.  Það þarf meðal annars að kjósa stjórnarfulltrúa og því er hverri sem er frjálst að birta framboðsræðu sína hér á síðunni og standa fyrir máli sínu 8|

En endilega svarið eftirfarandi spurningum:

1) Verður þú með í vetur?
2) Mætir þú á föstudaginn ?
3) Kemurðu á fundinn á mánudag?



» 16 hafa sagt sína skoðun

16.05.2011 13:27:22 / Hulda

Bensínblak á fimmtudaginn

Takið frá næsta fimmtudag frá klukkan 17 (þær sem geta). 
Stefnt er að strandblaki, góðum mat, myndasýningu og heitum potti.   
Já og svo náttúrulega villt skemmtiatriði nýliðanna. 

 Nánari upplýsingar þegar nær dregur.


» 20 hafa sagt sína skoðun

10.05.2011 13:59:51 / Hulda

Æfingar og bensínblak

Sælar stúlkur.
Við stefnum að æfingu á fimmtudag.  Bara svona létt til að gíra okkur niður og hittast aðeins.

Svo er könnun hér til hliðar um dagsetningu á bensínblakinu.  Svara takk.

» 16 hafa sagt sína skoðun

11.04.2011 11:22:37 / öldungar

Kjörísmót & Æfingaleikir

Kjörísmót 16. apríl, hver vilt fara?
Æfingaleikur með Afturelding fyrir A lið 19. apríl, vilt Bésur líka æfa með B-liðið Aftureldingu?

» 11 hafa sagt sína skoðun

08.04.2011 10:40:38 / öldungar

Nefndir!!

a)     Þvottanefnd: Fríða A, Margaret.

b)     Matarnefnd: Þóra, Magga, Stella.

c)      Skemmtinefnd: Inga Rut, Kristveig, Heiða.

d)     Snyrtinefnd: Renata, Aðalheiður, Dóra, Unnur?

e)     Ferðanefnd: Hulda.

f)       Verðlaunanefnd: Eyrún, Sella.

g)     Þjálfaranefnd: Fríða Sig.


» 12 hafa sagt sína skoðun

23.03.2011 09:06:00 / Hulda

Öldungamót - skipulagning

Til Eyja
á miðvikudag
með Herjólfi
kl 12:30
Til Eyja
á miðvikudag
með Herjólfi
kl 16:30
Til Eyja
á miðvikudag
með flugi
kl 17:30
Heim með
Herjólfi
Sunnud.
kl 10:30
Heim með
Herjólfi
Sunnud.
Kl 15:00 
Heim með
flugi
Sunnud.
Kl 11:20
Lokahóf
6.500 kr
Nefnd/
Hlutverk
Eyrún Harpa Hlynsd.     x     x  
Heiðbjört Gylfadóttir        
Inga Rut Hjaltadóttir   x    x      
Renata Agnes Edwardsd. x      x      
Sesselja Jónsdóttir   x á bíl      x á bíl      
Fríða Sigurðardóttir   x    x      
Dóra Kristinsdóttir x á bíl       x   Húsmóðir
Margrét Björnsdóttir   x    x dóru bíll      
Margaret Unger     x         já   
Hulda Ólafsdóttir     x     x  
Unnur Sveinsdóttir   x      x    
Kristveig Sigurðardóttir              
Fríða Agnarsdóttir    x    x  
Þóra Þórðardóttir     x     x  
Aðalheiður Þorsteinsd     x     x  
Guðbjörg Jónsdóttir?                
Stella Óskarsdóttir  x      x      já  
Eigum bókað: 2 bílar 4 sæti 5 sæti 2 bílar 6 sæti 1 bíll 3 sæti

Planið er að það fari 2 bílar(Dóru og Sellu)  kl. 12:30 á miðvikudeginu.  Magga fer með 5 farþega að Herjólfi en tekur ekki bílinn með yfir.  Á sunnudeginum fara 5 konur með báða bílana til baka kl. 10:30 og Dóru bíll verður skilinn eftir við Landeyjahöfn.  Dóra og tvær aðrar koma með ferjunni klukkan 15.
Skráningarfrestur rennur út 5. apríl 2011 og tekur skráningin gildi við greiðslu mótsgjalds.
Mótsgjaldið er kr. 36.000. pr.lið.  Innifalið í mótsgjaldi er frítt í sund fyrir keppendur alla mótsdagana

» 13 hafa sagt sína skoðun

07.03.2011 21:30:13 / Hulda

Gallar

Við erum að stefna að því að kaupa okkur æfingagalla frá Henson.  Heiða Þorsteins. er með sýnishorn til að máta þessa vikuna. 

Buxurnar verða svartar, en peysurnar gætu verið svartar með rauðri líningu innan í hettunni eða rauðar með svartri líningu í hettunni.  Það er könnun hérna til hliðar um þetta.  Endilega svarið henni ef þið hafið einhverja skoðun á málinu :d

Þessir gallar munu kosta um 10þ krónur og það er hverri og einni í sjálfsvald sett hvort hún vilji kaupa sér galla.  Við sendum samt inn sameiginlega pöntun.   Ef þið eruð búnar að máta og ætlið að kaupa, þá er um að gera að láta vita í 'athugasemdum'.


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.03.2011 13:33:21 / Hulda

Bresamót næsta laugardag.

Hver vill vera memm?

» 13 hafa sagt sína skoðun

02.03.2011 08:48:58 / Hulda

Hallærisleg hugmynd


Þar sem Ösurnar spiluðu frekar hallærislegan leik á liðnum hallærislaugardegi væri þá ekki upplagt að taka eins og eina hallærisæfingu???

Hvernig líst ykkur á það stelpur að mæta eins hallærislega til fara og mögulegt er (grímubúningar koma til greina) þriðjudaginn 8.mars, sprengidag?

Þenja sig út af saltkjöti og baunum og mæta svo á æfingu og springa úr hallæri ;)

Gaman væri að við myndum allar gera sérstakt átak til að komast þetta kvöld (höfum 2 velli á þriðjudögum) og skemmtilegt væri að þær sem
eru á þessum póstlista og hafa ekki verið að mæta komi okkur hinum á óvart.


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.01.2011 13:56:53 / Hulda

Þorramót Aftureldingar

Blakdeild Aftureldingar býður ykkur til


ÞORRAMÓTS Í BLAKI laugardaginn 5.febrúar.


Skráning fer fram á blak.is og ætlum við að reyna að setja mótið upp í fyrra fallinu og því loka fyrir skráningarfrest á þriðjudagskvöldið - á miðnætti.  (1. febr)


Reynt verður að spila í sem flestum deildum þar sem allir fá mótherja við hæfi.


Spilað verður upp í 21 og getur hrina endað 21-20.  Ef fá lið verða í deild þá verður spilað upp í 25 og oddur - fer eftir þátttöku.


Bjóðum alla blakara velkomna að Varmá.


Sjá upplýsingar á : http://blak.is/load_game.asp?mot=182%2D%DEorram%F3t+Aftureldingar+2011


Hlökkum til að sjá ykkur.


Bestu kveðjur
Gunna Stína
Formaður Blakdeildar Aftureldingar


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2011 14:40:41 / Hulda

Framundan í janúar og febrúar.

2.deild:

Föstudagur 28. janúar 2011

20:00

2. deild S Kvk

    Stjarnan A

HK b

Ásgarður


Heimaleikur - hér þarf umsjón:  

Föstudagur 4. febrúar 2011

19:00

2. deild S Kvk

    HK b

Þróttur Rc

Fagrilundur

 

Laugardagur 26. febrúar 2011

11:00

2. deild S Kvk

    ÍK

HK b

Íþróttahús HÍ


4.deildin verður spiluð 19. og 20. febrúar. 
Áætlað er að B-konur taki þátt þar. 
Látið vita ef þið sjáið fram á að komast ekki!


6 lið - Allir við alla, einföld umferð

Riðill A : Allir við alla

Tími

Deild

Lið A

Lið B

Dómarar

Umsjón

Völlur

Úrslit

Laugardagur 19. febrúar 2011

11:00

4. d.Suð B Kvk

Dímon

Stjarnan C

UMFG (3. Kvk)

Álftanes 1

11:00

4. d.Suð B Kvk

HK d

HK C

Bresi (3. Kvk)

Álftanes 2

11:00

4. d.Suð B Kvk

Álftanes B

UMFL

Bresi B (3. Kvk)

Álftanes 3

14:00

4. d.Suð B Kvk

HK C

Stjarnan C

Stjarnan B (3. Kvk)

Álftanes 1

14:00

4. d.Suð B Kvk

UMFL

HK d

Snæfell (4. Kvk)

Álftanes 2

14:00

4. d.Suð B Kvk

Dímon

Álftanes B

Afturelding B (3. Kvk)

Álftanes 3

Sunnudagur 20. febrúar 2011

09:00

4. d.Suð B Kvk

Stjarnan C

UMFL

Álftanes B (3. Kvk)

Álftanes 1

09:00

4. d.Suð B Kvk

HK C

Dímon

Álftanes B (3. Kvk)

Álftanes 2

09:00

4. d.Suð B Kvk

Álftanes B

HK d

Álftanes B (3. Kvk)

Álftanes 3

13:00

4. d.Suð B Kvk

Dímon

UMFL

Víkingur Reynir A (3. Kvk)

Álftanes 1

13:00

4. d.Suð B Kvk

HK d

Stjarnan C

Hamar (3. Kvk)

Álftanes 2

13:00

4. d.Suð B Kvk

HK C

Álftanes B

Bresi B (3. Kvk)

Álftanes 3

16:00

4. d.Suð B Kvk

HK d

Dímon

Álftanes B (3. Kvk)

Álftanes 1

16:00

4. d.Suð B Kvk

UMFL

HK C

Álftanes B (3. Kvk)

Álftanes 2

16:00

4. d.Suð B Kvk

Stjarnan C

Álftanes B

Álftanes B (3. Kvk)

Álftanes 3




Öldungamótið verður svo frá og með fimmtudeginum 5.maí tl sunnudagsins 8.maí.  Athugið að þetta eru tveir dagar sem þarf að taka frí úr vinnu.    Það væri gott að fara að heyra um þátttökuna. 


» 15 hafa sagt sína skoðun

20.01.2011 21:31:55 / öldungar

Sjoppa í HK Trimm

Ok, sjoppuplanið er komið.  Ef einhvern vilt að skipta með einhvern annan, gjörið þið svo vel.  Við fáum Eyrún og Ute til að spila eða hjalpa með umsjón á laugardagsmorguninn.

Okkar lið er að spila 8:30 á laugardaginn og siðasti leikurinn okkar er 13:10.



Margaret (margaret hjá librasoft.is)

» 13 hafa sagt sína skoðun

12.01.2011 11:55:15 / Hulda

Fimmtudagur, Laugardagur - næstu vikur


Á morgun (fimmtudag), ætlar A liðið okkar að taka á móti Aftureldingu og spila æfingaleik.  Ég er að vinna í því að finna athvarf fyrir B liðið.  Er að vona að einhver sjái aumur á okkur og taki við okkur í æfingaleik :p.

Á laugardag er leikur í 2. deild,  HK - Fylkir b.  Leikurinn er í Fagralundi og hefst klukkan 16:30.  Óskað er eftir framboðum í stöður ritara og boltasækja.

Um þarnæstu helgi er HK Trimm (22.-.23.jan) .  Við teflum að sjálfsögðu fram okkar liðum, er það ekki?  (svara takk)

4.deildar mótið er áætlað 18.-20. febrúar 2011, en ég á efitr að sjá staðfestingu á því.

» 12 hafa sagt sína skoðun

20.12.2010 09:02:39 / Hulda

Síðasta æfing fyrir jól

er í dag klukkan 18.

Hverjar mæta?

» 14 hafa sagt sína skoðun

10.12.2010 13:48:24 / öldungar

Jólajóla

Sælar sætu stelpur,
Þá er komið að hinu árlega jólakvöldi kvenfélagsins sem að þessu sinni verður haldið 
mánudaginn 13.desember eftir æfingu eða kl. c.a.20. 
Kalli hennar Heiðu var svo ánægður með það hvernig A liðið malaði hans lið um daginn að hann bauðst til þess að taka til í bílskúrnum og eftirláta okkur á meðan slotið að Hlíðarhjalla 12
Pakkaleikurinn í ár verður með örlítið breyttu sniði þar sem endurvinnsla og náungakærleikur spilar stóra rullu. 
Hver á ekki eitthvað skemmtilegt heima, eitthvað sem er rosalega flott en hún er orðin þreytt á eða gjöfina sem var ekki alveg að hitta í mark og er inni í skáp nema þegar tengdó kemur og þá er hún tekin upp. 
Væri ekki fínt að reyna að koma þessum hlutum í endurnýjun lífdaga, pakka þeim inn og mæta með á mánudaginn. Það má líka vera heimaföndur. 
Ef að þið eigið ekkert sem þið viljið losna við eða hafið ekkert föndrað þá reddið þið því á annan hátt.
Svo mætum við allar með 1000 kr. og styrkjum saman gott málefni.
Við verðum auðvitað að narta í eitthvað með þessu og gert er ráð fyrir að allir komi með eitthvað gúmmelaði á hlaðborðið. Það má vera hvað sem er, en gerðar eru kröfur til þess að 
það sé allt afbragðs gott að sjálfsögðu :)
Tilkynnið þátttöku, og hvað þið hyggist koma með, hérna fyrir neðan. Þannig getum við reynt að koma í veg fyrir að hlaðborðið okkar verði einhæft og uppfullt af sprúttum (verðlaun fyrir þann 
sem veit hvað sprúttur eru ;)

Kveðja Stjórnin (Heiða og Sella)


» 19 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21
Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 117049
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti